Upp á síðkastið hef ég mikið hitt af óléttum konum, bæði sem ég hef
kynnst bara í meðgöngusundinu og þekki fyrir. Nokkrar konur hafa
talað um að þær hafi gert klikkuðustu hluti þegar þær eru komnar á
vissan tíma á meðgöngunni. Tvær allavegana hafa þrifið bakarofninn
sinn. Einnig hef ég oft heyrt af konum sem hafa gengið
berkserksgang í að þrífa íbúðina sína og þrifið ótrúlegustu hluti
þrátt fyrir ástand verki og fleira. Þetta kallast á íslensku
Hreiðurgerð, eða nesting á ensku. Ég hef alltaf hlegið að þessu og
hugsað með mér að ég sé svo löt að þetta muni ekki hellast yfir mig
og ég muni ekki verða eitthvað hreingerningaróð þegar það fer að
nálgast í barnið.
Síðastliðin kvöld og eiginlega flest öll kvöld síðustu 3-4 vikurnar
hef ég verið fyrirvaraverki á kvöldin og eftir að hafa bölvað
þessum blessuðu fyrirvaraverkjum sem eru ekkert nema gott merki um
undirbúning líkamans hef ég farið að hafa áhyggjur af öllu sem mér
finnst að ég eigi eftir að gera áður en barnið kemur í heiminn. Í
gær ákvað ég að klára það sem ég átti eftir að gera fyrir skólann.
Ég byrjaði á að klára minn hluta í hópverkefninu, kláraði svo
hugmyndamöppuna mína og skissubókina mína og endaði á því að fara
að pæla í þessum blessuðu plöntum sem ég þarf að týna áður en
skólinn byrjar. Við Kiddi ákváðum að fara í bíltúr um helgina að
týna þær.
Í gærkvöldi átti ég síðan mjög erfitt með að liggja, er svo
hryllilega slæm í löppunum og bakinu, svo ég fór fram úr og
hélt áfram að taka til. Er búin að vera að taka til í íbúðinni og
"undirbúa" hana undir þrif, búin að fara í gegnum kommóðurnar mínar
og henda helling og þurrka af í inn í svefnherbergi svo ég er búin
að vera frekar róleg í þessu. Í gærkvöldi tók ég úr
uppþvottavélinni og fór gekk um og henti fullr af drasli, fór í
gegnum skóladót frá því í vetur og henti og henti.
í nótt lá ég andvaka. Sem er nú varla frásögufærandi. Nema hvað að
ég lá í rúminu að drepast úr verkjum og að skipuleggja hvernig ég
ætti að þrífa íbúðina mína. Hugsaði mikið um að byrja á að þurrka
af öllu. ÞRífa svo baðherbergið og að svo þyrfti ég að fara í
gegnum skápana í eldhúsinu bæði ryksuga þá og þurrka innan úr þeim.
Síðan var ég mikið að spá í að moppa gólfin því ekki má ryksuga og
þvo rúmfötin. Reyndar held ég að ég geymi það að þvo rúmfötin því
ég vil nú helst geta lagt mig í bólinu mínu eftir þrifin. Núna er
klukkan 9:25 hja mer og ég held að ég hafi kannski náð 3-4 tímum í
svefn allt í allt þó ég efi að það hafi verið það mikið. Ég vaknaði
svöng klukkan 8 og hef ekki getað sofnað aftur eftir það. Er mikið
að spá í að byrja þrifin ógurlegu en er ekki viss um að ég hafi
orku í þau
Núna er ég búin að sitja við tölvuna og skoða playlistann minn og
bæta inn á hann svo ég hafi "réttu" tónlistina í gangi. Ekki bara
stebba

En ég held að ég fari að hendast í þetta ég alveg iða í fingrunum
og vill ná að gera sem flest ásamt því að leggja mig (skipun frá
Kidda) áður en Kiddi kemur heim.